|
|
05.12.2007 19:05:45 / solla
Þá er þetta búið. Ég varði meistaraverkefnið mitt í dag. Það gekk alveg ágætlega, ég náði að svara flestum spurningum sem komu upp, ja að minnsta kosti nógu vel. Nú þarf ég bara að laga nokkra hluti í ritgerðinni, flest smáatriði sem betur fer. Ég er ólýsanlega fegin að þetta er búið, maginn í mér er reyndar ekki búinn að fatta það ennþá. Núna á ég bara eftir að klára eitt verkefni og verð væntanlega búin fyrir næstu helgi. Þá erum við einmitt að fara í skíðaferð með Kirkland genginu og Ballard genginu, verst að það er búið að vera svo hlýtt að það er ekki alveg víst að fjallið verði opið, þetta verður að minnsta kosti skemmtileg skálaferð í staðinn. Lifið heil
»
22.11.2007 22:32:56 / solla
Jóna systir og Óli mágur voru að eignast sína aðra dóttur þann 12. nóvember, hún hefur fengið nafnið Guðrún Lilja, sem mér finnst hljóma alveg einstaklega vel. Ég hlakka nú ekki lítil til þess að fá að líta hana augum, fæ eggjastokkahljóð bara við það að skoða myndir  Kl. korter yfir 6 í morgun skilaði ég generalprufunni af ritgerðinni minni, þetta er ekki lokaeintakið en prófessorinn á bara eftir að fara yfir það einu sinni í viðbót og þetta átti að vera heilstætt eintak með lokaniðurstöðum. Ég átti reyndar að skila því í gær en tókst ekki svo ég var að vinna í því í nótt. Ég er afskaplega fegin að þurfa ekki að vera að hugsa meir um ritgerðina í dag því nú er þakkargjörðarhátíð. Við erum á leiðinni til Kirkland ásamt fríðu föruneyti, þetta verður heljarinnar veisla, ég er með fyllinguna í ofninum og hún lítur bæði vel út og ilmar afskaplega vel, þá er að vona að hún bragðist líka vel. Þetta verður heljarinnar veisla í hjá Ernu og Hjalta í Kirkland, allir koma með einhvern mat og drykk. Við ætlum síðan að taka með okkur Singstar og Dance Revolution leiki og setja upp diskókúlu til að hafa góða stemning. Þetta verður legend...wait for it... dairy
»
06.11.2007 05:59:38 / solla
Undanfarið hef ég verið að keyra forrit, aftur og aftur og aftur, með mismunandi gögnum. Það er yfirleitt ekki mjög skemmtilegt en ég neyðist til að gera þetta fyrir mastersritgerðina mína. Sem betur fer fékk hjá hjálp frá Gunna og öðru góðu fólki til að fjöldakeyra forritin. Það munar miklu, núna tek ég 10 gögn í einu og læt tölvuna malla í fleiri klukkutíma. Annars er lífið fínt, bara aðeins of mikið að gera, ég tók mér þó meira og minna frí um helgina fyrir utan að sjá til þess að tölvan væri stanslaust að reikna. Það var ósköp notalegt, enda hef ég verið að vinna langa daga undanfarið. Við vorum voðalegir innipúkar, fórum ekki út fyrr en eftir hádegi, en okkur fannst það voðalega notalegt, enda erum við náttfatafjölskylda. Jæja, kominn tími til að fara heim, forritið var að klára.
»
31.10.2007 03:07:05 / solla
Jæja, núna finnst mér það allt í einu raunverulegt að við erum að fara að flytja til Íslands. Við fjárfestum nefnilega í flugmiðum í dag. Við leggjum af stað héðan seinnipartinn 19. desember en komum ekki til Íslands fyrr en þann 21. Ástæðan fyrir þessu er sú að við gátum fengið miklu ódýrara flug með því að fara kvöldi fyrr. Við ætlum því að gera eins og hinir Íslendingarnir, kíkja í Mall of America í nokkra klukkutíma og gera heiðarlega tilraun til að eyða þessum $1000 sem við spöruðum á því að taka fyrra flug . Við fundum síðan hótel sem er rétt á milli flugvallarins og verslunarmiðstöðvarinnar sem bíður upp á ókeypis skutl á báða staði, það er nú bara gargandi snilld  Annað í fréttum er að það er kominn ákveðinn dagur á vörnina mína, 5. desember. Ég fékk nú svolítið í magann við tilhugsunina, en þetta hlýtur að reddast... er það ekki?
»
24.10.2007 06:23:12 / solla
Við skelltum okkur í heimsókn til Morgan fjölskyldunnar um helgina. Þau eru flutt frá Santa Barbara til Denton í Texas (er rétt hjá Dallas). Það var frábært að hitta þau, eins og alltaf, við tókum lífinu með ró, vorum mikið heimavið en kíktum þó í miðbæ Denton á laugardaginn. Þar sátum við undir tré í tæplega 30 stiga hita (það var bara of heitt í sólinni) fyrir framan dómshúsið í Denton á meðan krakkarnir fóru í feluleik. Á sunnudaginn fórum við til Dallas, fengum okkur morgunmat á frábærum veitingastað og röltum svo um bændamarkaðinn og horfðum á háhýsin úr fjarska. Þau eru orðin fleiri en þau voru þegar Dallas þættirnir voru teknir, ég kannaðist þó við nokkur húsanna. Arndísi Dúnu og Gabriel kom mjög vel saman, þau tóku algjörlega upp þráðinn frá því þau hittust síðast og léku sér eins og englar. Ila hafði stækkað mikið, var hætt að skríkja eins og api (hennar leið til að tjá sig þegar við hittumst fyrir hálfu ári síðan) og farinn að spjalla mikið. Hún er algjör frekjudós en virkilega skemmtileg. Hún var alltaf að þykjast vera í símanum, potar í höndina á sér, framkallar píp og setur síðan höndina upp við eyrað. Síðan heyrðist alltaf í kerlingunni, be quiet, I´m on the phone, ætli hún hafi ekki heyrt þetta ansi oft hjá móður sinni Hún var ekkert feimin við mig þegar hún hitti mig, en þegar hún hitti Gunna tók hún algjöru ástfóstri við hann, vildi hreinlega ekki sleppa af honum höndinni og heimtaði að hann sæti alltaf hjá henni. Núna erum við sem sagt komin til baka, ég er alveg skelfilega upptekin í skólanum og Dísin er ekkert allt of sátt við það. Hún þarf því miður að þola það næstu 2 mánuðina eða svo.
»
27.09.2007 18:40:10 / solla
Ýmislegt hefur á daga okkar drifið síðan við skrifuðum síðast. Gunni og Arndís Dúna komu til baka, það voru miklir fagnaðarfundir hjá litlu fjölskyldunni. Dísin vildi helst ekki sleppa höndinni af móður sinni og hefur bókstaflega hangið í rassvasanum hennar. Gunni fékk starf hjá Glitni og byrjar þar í byrjun janúar. Hann verður gjaldkeri nr. 3 í útibúinu í Mjóddinni... ja eða ekki, hann er að fara í áhættustýringardeild Glitnis. Við skruppum í helgarferð til Santa Barbara. Það var alveg yndislegt, verst hvað tíminn leið hratt. Arndís Dúna var í skýjunum yfir að hitta ömmu sína og afa. Hún fékk allt sem hún vildi og meira til. Gott að eiga ömmu og afa sem leyfa manni allt milli himins og jarðar. Skólinn er byrjaður aftur hjá mér, ég hef reyndar verið í skólanum nánast alla virka daga í sumar að vinna að lokaverkefninu en núna er ég líka í tímum. Gunni er líka farinn í skólann, mest að kenna en svo situr hann einhverja kúrsa svona til að halda sér við.
»
26.08.2007 04:25:08 / solla
Gunni og Arndís Dúna yfirgáfu mig í morgun. Ég kvaddi þau á flugvellinum um 8 leytið. Þau fóru í 3ja vikna ferð til Íslands og á meðan á ég að vera hrikalega dugleg að vinna í verkefninu mínu. Ég er strax farin að sakna þeirra, sat heima í dag og var alltaf að bíða eftir að þau kæmu inn um dyrnar. Dísin er búin að bíða spennt eftir ferðinni, það er búið að bjóða henni í nokkur "sleepover" og hún fúlsar sko ekki við slíku.
»
13.08.2007 19:42:35 / gunni
Stóra stundin er runnin upp, nýi fjölskyldumeðlimurinn er kominn
í hús. Fæðingin var svoldið erfið, ég kramdi tærnar á mér aðeins
þegar ég dró hann inn fyrir þröskuldinn. Samt ekkert miðað við
sársaukann sem Solla þurfti að þola þegar síðasti
fjölskyldumeðlimurinn bættist við.
Tækið beið bara eftir mér fyrir utan þegar ég kom heim
áðan, storkurinn hefur ekki nennt að bíða eftir mér. Svolítið
skrítið að skilja HUGE pakkakassa eftir fyrir utan.
Kassinn var reyndar bakdyramegin en það fór ekkert á milli mála
hvað var í honum. Heppni að Jói Glæpur var ekki á kreiki og langaði
í glænýtt sjónvarp.
Nú bíð ég bara spenntur eftir að Solla komi heim svo við getum
byrjað á fullu að setja saman IKEA húsgögnin og stilla upp
græjunni. Ég nenni því ekki einn, þetta er nefnilega ca. 40 kg
flykki, búinn að kremja nógu margar táslur í dag.
Ég er að rifna á límingunum yfir spenningi yfir þessu öllu
saman 
»
11.08.2007 18:23:29 / solla
Litli strákurinn minn, hann Gunni, er búinn að vera sjúkur í
langan tíma í stóran flatskjá. Ég hef reynt að halda aftur af honum
því mér finnst við ekki þurfa hann nauðsynlega en eftir 2 ár af
suði hef ég gert það sem allir góðir foreldrar eiga ekki að gera,
látið undan 
Núna eigum við von á tröllvöxnu sjónvarpi, 46" hvorki meira né
minna. Þá er bara að vona að stofan beri þetta ferlíki.
Auðvitað þarf nýjan sjónvarpsskáp fyrir þetta skrímsli, svo við
fórum á stjá. Við enduðum á að kaupa hann í IKEA, eins og svo margt
annað á heimilinu. Í leiðinni fengum við okkur auðvitað sænskar
kjötbollur og Arndís fékk að fara í småland, henni til mikillar
ánægju.
»
02.08.2007 18:30:13 / solla
Jæja, það er komið í ljós að þessi fluguinnrás var ekki mér að
kenna. Þær komu ekki inn um opinn gluggann og auk þess voru þetta
ekki flugur.
Scott, félagi minn kom í heimsókn í gærkveldi og eftir að hafa
kíkt á herlegheitin sagði hann að þetta væru ekki flugur heldur
fljúgandi maurar. Jibbí kóla, frábærar fréttir... eða... ekki.
Við vorum að spila Settlers, Cities and Knights, með Scott og
Grétari í gærkveldi og eldhúsið fylltist aftur af þessum kvikindum.
Við náðum að hreinsa eldhúsið en eftir smástund voru jafnmörg
kvikindi, ef ekki fleiri, komin aftur. Eftir smá skoðun sáum við
hvaðan maurarnir voru að koma. Við hreinsuðum því aftur og límdum
fyrir gatið og í morgun voru bara nokkrir að þvælast um. Í dag
bíðum við eftir meindýraeyði til að koma og losa okkur við þá.
Ég las smá Harry Potter áður en ég fór að sofa og var lika ad
hugsa um verkefnid mitt. Draumarnir i nott voru sambland af Lord
Voldemort, viðbjóðslegum fljúgandi maurum og verkefninu. Alveg
hreint yndisleg blanda.
»
01.08.2007 18:22:19 / solla
Þar búið að ráðast inn í íbúðina okkar, árásaraðilarnir eru
flestir með 6-8 fætur.
Í nótt fór Gunni inn í eldhús, það kom í ljós að ég hafði gleymt
að loka eldhúsglugganum (sem hefur nú alveg gerst áður án nokkurra
vandræða) og inn hafði streymt heil fjölskylda af ljótum
hlussuflugum sem við höfum aldrei séð áður. Þær voru út um allt.
Gunni náði að drepa sumar en lét flestar vera, lokaði bara inn til
Arndísar svo hún fengi ekki sjokk við a sjá þessi flykkildi. Fyrsta
verk mitt í morgun var að koma afganginum af flugunum fyrir
kattarnef og ryksuga upp herlegheitin.
Þegar ég var að ryksuga sá ég að önnur innrás hafði verið gerð í
gær, nú voru komnir maurar í húsið líka, ný tegund. Ekki veit ég
hvort þessi er betri eða verri en hin tegundin sem hefur verið að
hrjá okkur öðru hvoru.
Svona til að bæta gráu ofan á svart var heil fjölskylda af
pínulitlum köngurlóm inn á baðherbergi.
Já þetta er greinilega góður dagur hér í Sívætlu 
»
09.07.2007 17:18:07 / solla
Gærdagurinn var ansi skemmtilegur. Við Arndís byrjuðum á því að
fara út á kaffihús til að fá okkur morgunmat (það var nefnilega
ekki til mjólk, hvorki út í kaffið né í morgunkornið). Á leiðinni
heim kíktum við á vini okkar og nágranna Jennifer og Sammie og
ákváðum að fara með þeim í vaðlaugina hér við Green Lake.
Við eyddum góðri stund við vaðlaugina, mér tókst að brenna mig á
öxlum og baki þrátt fyrir að hafa borið tvisvar á mig sólarvörn nr.
45 (greinilega mistókst þessi áburður eitthvað). Ég var líka hálf
sljó eftir alla þessa sól.
Dísa, vinkona okkar, var að koma í gær, hún er að fara á
vikunámskeið hér í UW. Gunni náði í hana á flugvöllinn og eftir
vaðlaugarævintýrið fórum við í smá bíltúr um borgina. Við
heimsóttum tröllið undir brúnni og fórum á útsýnisstað við Queen
Ann.
Við enduðum síðan daginn á því að borða pizzu með uppáhaldinu
hennar Arndísar Dúnu, ólífum, sólþurrkuðum tómötum og fetaosti. Þá
kom þessi setning hjá Dísinni, "Mamma, þetta var best day ever,- í
alvörunni".
»
03.06.2007 01:19:11 / solla
Gunni gaf mér myndavél í afmælisgjöf, sú gamla var frekar
leiðinleg. Þetta verður vonandi til þess að ég fari að taka fleiri
myndir.
Afrakstur síðustu daga má sjá hér og
hér í albúminu okkar.
Lifið heil.
»
21.05.2007 04:06:33 / solla
Arndís Dúna átti 4ja ára afmæli á fimmtudaginn, hún var búin að
bíða spennt eftir því í LAAANGAAAN tíma. Hún fékk góðar gjafir, við
þökkum fyrir þær, og var afskaplega ánægð með daginn. Hún fór með
kökur í leikskólann og var líka svo heppin að það var superhero day
í skólanum. Hún valdi búninginn sjálf og var fjólublár superhero
dreki með derhúfu. Núna bíður hún eftir því að verða 5 ára 
Í dag komum við heim úr stórskemmtilegu ferðalagi. Við eyddum
helginni með genginu (Kirkland og Radford fjölskyldunum) í
fjallakofa (cabin), nema að þetta var enginn kofi heldur lúxus
bústaður og ekki staðsettur uppi í fjalli.
Þessi bústaður var með öllu sem hægt var ímynda sér, fullbúnum
kaffibar, risastórum ísskáp, uppþvottavél, þvottavél, þurrkara,
risastóru sjónvarpi (yfir 50" örugglega), arni, sem sagt öll
aðstaða miklu betri en heima hjá okkur. Að sjálfsögðu var hann líka
með heitum potti, til hvers að fara í bústað ef það er ekki heitur
pottur? Á fimmtudaginn fengum við tölvupóst þar sem okkur var
tilkynnt að heiti potturinn yrði ekki virkur, því það átti eftir að
tengja rafmagnið í hann. Ég var ekki viss hvort ég ætti að gráta
eða öskra, ég endurtek, til hvers að fara í sumarbústað ef það er
ekki heitur pottur? Við ákváðum að láta þetta ekki á okkur fá,
gripum með okkur garðslönguna og létum það vera okkar fysta verk að
skella garðslöngunni í eldhúsvaskinn og leiða út í pott. Eina
vandamálið var að heitavantstankurinn var pínkulítill miðað við
pottinn svo það tók ógnartíma að fylla hann og að vatnið varð ekki
nógu heitt svo við þurftum líka stanslaust að vera að sjóða vatn á
eldavélinni og hella út í pottinn. Vinnan (og kalda sturtan) var þó
vel þess virði þegar við sátum úti í potti með bjór og horfðum upp
í stjörnubjartan himininn.
Börnin skemmtu sér líka stórkostlega, ekki slæmt að vakna og
geta strax farið að leika við vini sína.
Í dag héldum við síðan heim á leið en komum við í litlum
"þýskum" túristabæ. Hann var svolítið krúttlegur en afskaplega
gervilegur, svolítið eins og "danski bærinn" Solvang (já nema
þýskur ). Þar fundum við fallegan almenningsgarð og fórum í
gönguferð. Okkur stóð þó ekki á sama þegar við lásum á skiltum að
alls ekki mætti skilja eftir rusl því sést hefði til bjarna og held
ég að það hafi flýtt örlítið fyrir göngunni.
Nú erum við komin heim, þreytt en sæl. Ég hugsa að ég fari
snemma að sofa, þarf víst að líta vel út á morgun þar sem ég verð
þrítug.
Lifið heil.
»
11.05.2007 06:55:45 / solla
Við fengum nokkra góða gesti heim í dag til að horfa á
Eurovision keppnina.
Hún hófst klukkan 12 á hádegi svo við byrjuðum partýið klukkan
hálf 12 með samlokum og safa. Við vorum með okkar eigin stigagjöf
og veðbanka (súkkulaði í verðlaun og allt) og það var hin besta
skemmtun að gera grín að lélegum lögum, annkanalegum búningum og
furðulegri sviðsframkomu sumra keppenda. Eiríkur kom laginu sínu
vel til skila og ég var bara ansi ánægð með karlinn.
Það var svolítið sjokk að Ísland hafi ekki komist áfram en þó
var það miklu meira sjokk að Búlgaría komst áfram. Ég ætlaði ekki
að trúa því þar sem lagið, söngurinn, búningarnir og framkoman var
afspyrnu leiðinleg og léleg. Sem skaðabætur fyrir Eírík, þá komst
lagið sem ég held með, Ungverjaland, áfram. Röddin í söngkonunni,
Magdi Rúzsa, heillar mig gjörsamlega.
Eftir þetta þori ég varla að fylgjast með kosningasjónvarpinu á
laugardaginn, fyrst Búlgaría komst áfram gætu B-ararnir hæglega
fengið frábært fylgi 
Þangað til næst.
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|